Inside the lonely mixed up world of Snævar

hæ...

16.01.2008 22:46:42 / creeper

long time no nothing sko!

jæja þá eru það smá fréttir af mér, ég er að vinna í álveri alcoa á reyðarfirði... það er ansi merkileg upplifun verð ég að segja og er ég kominn með þykkt og mikið yfirvaraskegg og hef tekið upp nafnið Bayer...

da

da

da

en það er bara að vinna hérna eitthvað svona skorpuvinnu á austfjörðum með því sem ég er að kikka inn við það að skrifa þessa aldæmdu b.a. ritgerð mína... it´s infamous... jeeeee

en krukkudíllinn náði mér ekki og ekki heldur klukkan ég hef haldið lífi í hvergilandi, við vinnu og nýkominn úr jólafríi vissulega sem að vissu leyti alveg hreint drepur niður alla nennu að hanga svona endalaust í fríi þess vegna er fínt að hafa vinnu hérna á Austfjörðunum...

að skemmtilegri málefnum, en það er vaxandi tíska meðal ungra karlmanna að girða sig í brók, þetta er hugtak sem að eflaust mörgum þykir koma spánskt fyrir sjónir og því er ekki nokkur spurning að greina það til hlítar og grafa stríðsöxina milli fjandmanna vorra til þess eins að brjóstbirta vor hverfi eigi úr hjörtum okkar....

spáið í því að þessi setning sem ég skrifaði, vitanlega án allra punkta og komma ha Fjóla? problem with that? ;) en já setningin spáið í að það er stór hluti landsmanna sem að hefur líklega ekki heyrt meirihlutann af þessu sem ég var að skrifa...orð sem koma upp í hugann eins og grandlaus... þetta er alveg stórleiðinlegt að hugsa til þess að unglingar og börn í dag mörg hver alls ekki öll skuli ekki getað sagt neitt nema að sletta eða nota einhverjar skammstafanir, krakkarnir eru meira að segja hættir að nenna að hlægja!!! þetta er satt þau segja lol ef það er mjög fyndið en rofl ef það er alveg drepfyndið, þetta er nú fyrir neðan allar hellur verð ég að segja...

ég ætla að fá eina pulsu..

ok

haddna

(rétt fram kortið með fílusvip og ekki sagt takk.) --->tekið við kortinu og ekki kemur eitt eina bros.... eikka fleira? (hrist hausinn kæruleysislega og ljósstrípað hárið dettur fram fyrir augun á viðskiptavininum... það eru öll samskipti að deyja út... þetta samtal hefði getað átt sér stað á hvaða stað sem er nánast á Íslandi... ímyndum okkur nú aðra sögu...

góðan dag :) --> góðan daginn :)

ég ætla að fá eina pylsu með öllu þakka þér fyrir :) -- > já er það eitthvað fleira

ha? nei takk ég er góður :) eitt svona rottuskott dugar alveg haha: :) --->haha já

og jafnvel kemur upp smá saga í kringum það sem er bara gaman... ég legg til að á Íslandi verði íslensku kennsla stór aukin, dönsku kennsla felld niður til að losna við þetta vandamál með pulsuna og seinka lærdómi á ensku því að það er íslenska sem er okkar mál en ekki eitthvað tölvumál og/eða ensku slettu dótarí

hana nú, nú eða hænu hahahahaha

en meira verður væntalegt og kannski eitthvað jafnara að þessu sinni....

kv. Snævar 


» 11 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 13:40:31 / creeper

tikk takk heyrist þegar krókódíllinn kemur tikk takk

tikk takk tikk takk,

þetta vaknaði ég við einu sinni tikk takk tikk takk, ég setti hausinn undir sængina og beið eftir því að vera bitinn, tikk takk, ég beið og beið en bara tikk takk tikk takk.

þetta gekk svona í dágóða stund ég var farinn að örvænta, anda hraðar og var í raun alveg á því að fríka út þegar ég náði í örvæntingu minni að líta út undan sænginni og þá sá ég það... starandi beint í augað á mér tikk takk tikk takk. ég hélt ég myndi bilast, reyndi að stara á móti en það kom bara tikk takk tikk takk, ég þoldi ekki meir þvílík var spennan og ég stökk upp í rúminu en veran sagði áfram bara tikk takk tikk takk, þvílíkar og aðrar eins taugar í skepnunni, það er ómögulegt að bíða svona eftir því að vera étinn.

tikk takk tikk takk ég hvíslaði viltu hætta? en svarið var enþá tikk takk tikk takk og ég reyndi að yrða meira á þessa furðuveru sem hljómaði eins og krókódíllinn í Pétri Pan tikk takk tikk takk, ekki gera mér þetta gargaði ég og þá svaraði veran loksins... BÍBÍÍBÍBÍBÍBÍBÍBÍBÍBÍBÍBÍBÍBÍBÍBÍBÍBÍBÍBÍB ég stökk upp og hljóp að hurðinni hún hætti ekki þessum látum BÍBÍBÍB´BIBÍBÍBÍB´BI´BIBÍBÍBÍBÍBÍBÍB ég ákvað þá að kveikja ljósið sem ég og gerði *klikk* þá sá ég það þvílík og önnur eins skömm...

eftir þetta hef ég alltaf haft stafrænar vekjaraklukkur...

kv. Snævar


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 13:39:20 / creeper

Sigló

Jæja Aníka mín ég afsaka lengdina eftir bloggi frá mér. ég hef verið svo hrikalega upptekinn af því að gera ekki neitt... hrikalega slítandi satt að segja... ég er á sigló núna þar sem er kafaldsbylur og mikill snjór... annars er það helst í fréttum að gúrka sveif yfir himinn mér og ekki er ég í miklu stuði til blogga en þetta var rétt til að sýna líf.. meira kemur þegar ég verð kominn á bif og búinn að koma mér fyrir er gjersamlega að kafna úr verkefna vinnu

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 21:35:42 / creeper

Sumarið er tíminn

jæja ég afsaka bloggleysið hjá mér undanfarið en ég hef verið á Neskaupstað...

núna á sunnudag mun taka við tveggja vikna ferð til höfuðborg frakklands sem er ekki róm né kúala lúmpur...

held að ég verði fínn í frönskunni... jeg skal har en kop kaffee tak!! og hlakka til mar úff...

annars eitthvað lítið af pælingum hjá mér þessa daganna... nema kannski fjölbreytileiki fólks það er ansi skemmtilegt... fólk er stórt mjótt og lítið og feitt... ég dýrka að sitja með kaffibolla á svarta kaffi á laugarveginum að horfa á fólkið... sjá það í flýti sínum bruna framhjá lífi mínu eins og bílar í lífi skordýrs...veit ekkert hvaðan sú samlíking kom en svona er það...

 ég bíð svo bara eftir frekari ævintýrum sem munu gerast fram að áramótum... heldd þetta sé írónía svo að þið verðið að gera líf mitt skemmtilegt svona á leið ykkar í bæinn.. og úr honum get ekki ábyrgst að ég eigi eitthvað handa ykkur þar sem karen verður ekki hér en ég get lofað núðlum og mikilli skemmtun verður ansi skemmtileg;)

ætlaði bara að segja þetta svona létt af mér, en ég mun verða virkur í blogginu þegar ég kem frá frakklandi og mun þá koma einhverjir skemmtilegir pælingar pistlar... sem munu kitla hláturtaugar augntófta ykkar...

kv. Snævar


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 08:17:44 / creeper

Sit hér einn á rauðu ljósi...

jæja komiði sæl, sækir að mér sá grunur að ekki nokkur maður hafi nennt að lesa bloggfærsluna hér á undan sem er svosem ekki undarlegt löng færsla sem endar á að ég sé pirraður.

ég er hinsvegar góður í dag alveg mega þreyttur eins og latabæjartölvunördinn goggi mega myndi segja, sofnaði seint og illa stupid fyrirlestur sem þarf að halda...

annars er lítið að segja var á sigló um helgina sem var bara snilld þægilegt og rólegt fer ég svo til reykjavíkur í seinnipartinn til að skreppa í mat..

er í kúrs um islam og kristni árekstra þarna á milli o.s.frv. þetta er skemmtilegt nokk og skondið að spá í þessum málum öllum. hef líka upp úr þessu verið að spá í eitt...

kristni gagnrýnir islam á morgun þrepum, ein gagnrýnin er á múhameð þar sem hann er gagnrýndur fyrir að hafa tekið þátt í stríði í nafni islam. en kristnin á að vera stríðslaus trú, bera þetta allt út fallega. það kemur mér til að hugsa til seinni heimstyrjaldarinnar, írak og afganistan svo fátt eitt sé nefnt. ég ætla ekkert að segja meira leyfa ykkur að velta þessu upp og sjá svo hvor trúin sé stríðslaus.

ég er hlynntur fólki að trúa en á vísindakirkjuna kaballah og svoleiðis hef ég litla trú á. fínt að fólk finnur sér eitthvað að gera en úff... trúin byggist á mystík en það er engin mystík við það að eigna sér seinni heimstyrjöldina og fá sófahopparann til að segjast trúa á þetta...

jæja bless í bili:)

kv.Snævar


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 09:24:59 / creeper

Ok is such a meaningfull word!!

ok... ég dett stundum inn á það að flakka um bloggs síður vina og annarra... þetta geri ég svona ef að ég sfit í tíma um feminisma og konan sem að á að vera að kenna nánast lætur mann missa áhugann á efninu þráðurinn týnist allavega svo les maður aðeins og bara aha!! þetta er ansi merkilegt...

ekkert að ske svosem ég er bara í skólanum enþá bíða eftir parís hehe eina svona sem er að ske held ég... reyndar er ég að fara í útskrift um helgina og hlakka bara til að sjá það allt saman:D verður stuð.

annars er það í fréttum að ég hlakka til að komast næst í skurðinn góða.. hef ekki farið þangað lengi og er ekki að vinna þar í sumar ekki laust við að maður sakni raussins í köllunum á kaffistofunni verð ég að segja...

 

ú já eitt.... eins og margir vita er Guns N´Roses eitt mitt helsta áhugamál og tel ég mig vita allnokkuð um þá. Þannig er mál með vexti að ég var í trivial um daginn og þar kom spurning en hún hljómar svo: Hvaða hljómsveit stofnuðu Stradlin, Rose, Beich, Gardner og Guns árið 1985... ég leit í kringum  mig horfði í barm mér leit upp og sagði skælbrosandi, stoltur og ekki laust við grobb Hollywood Rose. Sprakk þá liðið úr hlátri að sjálfur Guns N´Roses fjörkálfurinn hafi svarað VITLAUST um GNR. Nei það gerist ekki svona ó nei... þá var rétta svarið Guns N´Roses... hvað er það?!

eftir að hafa skrifað textann hér að ofan þá fór ég á stúfana leita heimilda um þetta aðeins og komst ég að því að spilið hefur að vissu leiti rétt fyrir sér...hinsvegar spilaði þetta band í mesta lagi einu sinni saman. í þessari mynd og þá undir nafni tveggja hljómsveita sem voru að verða að einni( L.A. Guns og Hollywood Rose

December 31st, 1984 - Hollywood Rose reunites for a New Year's Eve show at the Dancing Waters.

Rob Gardner is on drums and Steve Darrow on bass.

Chris Weber was later replaced by Tracii Guns.

January, 1985 - In January 1985 Duff and his friend, Greg Gilmore, moved down to LA. They started to answer ads and attending auditions together.

Duff decided to start playing the bass instead of guitar.

Through one ad, in the Recycler, Duff met Slash and Steve Adler. They started a band called Road Crew . While in Road Crew Slash came up with a riff that later turned up in a song called "Paradise City".

Greg Gilmore attended a few of their practices, but he decided to move back to Seattle (later he played in Mother Love Bone, which also included Jeff Ament and Stone Gossard, both are now members of Pearl Jam).

March 26th, 1985 - A flyer for a show at The Troubadour in Los Angeles says "L.A Guns and Hollywood Rose presents the band Guns N' Roses". The band's line-up is: Axl, Izzy, Tracii Guns, Ole Beich and Rob Gardner.

The band calls themselves Guns N' Roses (they rejected the names Heads Of Amazon and AIDS).

Later Duff joins the band and the lineup looks like this:

W. Axl Rose (vocals)
Izzy Stradlin (guitar)
Tracii Guns (guitar)
Duff McKagan (bass)
Rob Gardner (drums)

June 6th, 1985 - The GN'R lineup of:

W. Axl Rose (vocals)
Slash (lead guitars)
Izzy Stradlin (rhythm guitar)
Duff McKagan (bass)
Steven Adler (drums)

plays at the Troubadour in Hollywood, CA."A Rock N Roll Bash Where Everyones Smashed"

 þetta er sagan eins og hún er... mjög leiðinleg spurning þar sem ég get ekki litið á þetta sem þá hljómsveit en anywho... svona er þetta víst... ég er kjáni... í mínum huga hefur guns alltaf verið stofnuð 6 júní 1985. það er bandið sem varð stórt það er bandið sem fólk þekkir...

 

þetta er eins og að kalla Dave Abbruzzese, eða Dave Navarron eða kelli Scott eða Chris Tweaker... þetta eru menn sem hafa unnið með GNR í seinni tíð en eru ekkert hluti af bandinu gerðu ekkert með þeim spiluðu á einhverjum lögum fyrir löngu síðan en ekkert meir...

 

og ég er orðinn pirraður...:evil::evil::evil::evil::evil::evil:

 

kv. Snævar


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 11:27:57 / creeper

mynd um mig í tónlist ...

þetta yrði sértaklega sjúk og spes mynd en geggjað góð!:D hér eru niðurstöðurnar og já ég fékk þetta hjá Siggeir (www.folk.is/slayerinn)

- Opnunaratriði: I don´t know með Sebastian Bach (miðlungs lag sem að hentar ágætlega fyrir einhverja sögu í byrjun)

- Þegar þú vaknar: youth gone wild með skid row ( haha snilld sko alveg ég þessa daganna dýrka Skid Row og þessi texi á við..)

- Fyrsti skóladagurinn: dust in the wind með guns n roses (fínt life lag en þetta byrjar á setningunni tell everybody that i´m sorry, játningarlag hmm fresh start í skólanum haha)

- Að verða ástfanginn: desperado með eagles ( haha þetta finnst mér skondið að vera með svona loner lag í ástinni kannski maður verði alltaf hálfgerður einfari )

- Slagsmálalag: here I am með Skid Row (6foot1 and lonely, svo á öðrum stað here I am close your eyes and i´ll be superman gæti verið slagsmálalag í wayne´s world :D)

- Að hætta saman: One light með Skid Row (nýji söngvari Skid Row kann ekkert við hann, er eins og nickelback og það allt en samt virkilega trgafullt lag og falleg hentar furðu vel...)

- Árshátíð: Guns N´Roses(Slash) Spanish Guitar Solo ( újé geggjað sóló með geggjuðum gítarleikara however erfitt að sjá þetta fyrir sér á árshátíð)

- Lífið: Cold Machines með Alice Cooper (nett hart lag ádeila ákveðin á kapitalisma see you working at your station radiation blinds my eyes)

- Andlegt áfall (taugaáfall): Satan´s in the manger með the last hard men (undarlegt band í alla staði. Og ég skil vel þetta er svona sennilegt að taugaáfallið mitt komi þá eftir sveppaát og sýruneyslu)

-Að keyra: tied to my soul með Douglas Wilson (þetta lag hefur löngum verið blastað í bílnum gott lag með magnaðri hljómsveit sem er ekki nógu duglegir við að koma sér fram, menn í sitthvoru landinu algjör synd)

- Afturhvarf (Flashback): Rock bottom með sebastian bach(lagið byrjar þannig að ég gæti verið að hlaupa úti á engi nakinn innan um hveitikorn, en svo kemur bara rock bottom and you are ther to stay poppað blúslag sem maður sveiflar sér hægt við eða frekar dillar sér:D)

- Að taka aftur saman: Eat some more með Alice Cooper (do you like the taste stuff it in your face(...) so we eat some more throw up on the floor were so hungry so pathetic... þetta er greinilega ekkert sniðugt að taka saman aftur...)

- Brúðkaup: It´s my Life með Bon Jovi (hehe merkilegt lag fyrir mig og Karen hmm do you believe in destiny?)

- Fæðing barns: Lamb með Skid Row (aftur nýji söngvarinn með Skid Rowshadow of your sins are following you.. þetta verður undarlegur krakki...)

- Lokabarátta: the death song með marilyn manson (the name says it all
J )

- Dauðaatriðið: tonight´s the night með sebastian bach (þið verðið að fletta þessu lagi upp texta og öllu falleg lag... spes... svolítið eins og vögguvísa..þetta verður allavega voða rólegt og creepy... ég dey sennilega þegar skrímslin ná mér loksins.. hinsvegar er það svona það sem mér datt í hug þegar ég heyri þetta svona maður búinn að koma kærustunni sinni fyrir og murkar hægt úr henni lífið og tekur svo sitt eigið líf yfir henni til að enda líf þeirra saman allt gert voða rólega og fínt:D)

- Jarðarfararlag: somewhere over the rainbow gítar sóló með slash ( ójá og Slash stendur í fullum skrúða ofan á kistunni þegar hann spilar þetta!)

- Lokalag (credit listi): I´m already there með lonestar (já ekki vitlaust þegar ég heyrði þetta fyrst var ég á erfiðum kafla frekar stórt í mínum huga klökknaði alveg þegar ég heyrði þetta fyrst... very nice væmið en nice)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 08:39:35 / creeper

Rattati eða Rintintin

man einhver eftir Lukku Láka?

ég man vel eftir honum hann var skemmtilegur maður hætti meira að segja að reykja þegar það hætti að vera hollt... hinsvegar var eitt sem að plagaði mig mikið milli teiknimyndasögubókanna og sjónvarpsþáttanna... en það var nafnið á hundinum í bókunum var hann kallaður rattati en í þáttunum rintintin leiðinda pæling þetta...

ég kann vel við ljóð...

kosningar í nánd... úff hvað á að kjósa... hvað á að kjósa... eitt mun ég aldrei verða en það er íslenskur jafnaðarmaður...æjjj ekki segja aldrei kannski en íslenskir jafnaðarmenn eru jú samfylkingin og einhvern vegin hefur öll þeirra hegðun alltaf skilað sér í mínum augum í kúkábak syndromi... en nenni ekki að tala um pólitík... jafn leiðinlegt og tala um fótbolta sérstaklega þá ákveðnir hópar...

jæja whatever... sko... þannig er nefnilega að ákveðnir hópar innan knattspyrnu skilja ekki af hverju aðrir halda ekki með liðinu sínu það sé lang best!! og þetta fólk verður bara reitt ef maður skilur ekki þeirra skoðun þetta er týpan sem er ekki að horfa á fótboltann sem skemmtun heldur bara af því að þegar þau voru  börn sagði þeim einhver að halda með þessu liði og það gera þau án nokkurra vandkvæða...ef einhver úr öðru liði meiðist sama hvort hann sé virkilega góður knattspyrnumaður þá standa þessir áhangendur upp og klappa... þetta sama má segja um stjórnmálaflokkinn sem að passar undir þetta þak...þetta er fólkið sem leyfir öðrum ekki að klára mál sitt reynir að fipa andstæðinginn með leiðinda athugasemdum sem þau skjóta inni mál hinna.. virkilega þreytandi pólitíkusar... svo ef það er fundið einhver skotspónn þá er staðið upp og klappað fyrir þeim hrakförum... ekki rætt þetta...

þessir hópar einkennast af sama litnum...

veriði sæl

Snævar


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 15:13:25 / creeper

menn kalla hana betty sue

þegar menn kalla konur betty sue eins og gerist tiltölulega oft í nútímanum þá er verið að vitna til þess þegar konu höfðu einungis einn handlegg... þær gátu þá einungis eldað einfaldann mat en ekki gert tvennt í einu núna hafa þær tvo handleggi og geta þær þess vegna gert tvennt í einu...

 

ef að hugsað er til þess er þetta líka alveg að makea sense... karlar geta bara gert eitt í einu... satt þess vegna er það gert okkur lífsins ómögulegt að örva konur nema á einn hátt í einu... brjóstin höfð ofarlega langt frá svo ekki sé eitthvað verið að gera of margt í einu....

 

hafið þið líka hugsað um trúða... hvernig ætli það hafi virkað fyrst... hæ! ég er trúður haha! það er bara skondið að hugsa til þess sko... sennilega hefur þetta þróast út frá klæðskiptingum á 16 öld... þar sem "meikið" var hvítt skiljiði? einhver fjölskyldufaðir haldið að hann væri einns heima klætt sig í föt sem hann var búinn að gera út borðdúkum liðinna ára... hann var drykkfelldur kallinn svo hann var með stórt og rautt nef en ansi hress kall samt... svo eftir margra ára bið koma að því... konan fór út með börning hann var búinn að sauma á sig galla en því miður var hann soltið stór á hann en það skipti ekki öllu... hann sat í gallanum og var að mála sig... 

vá hvað ég er flottur... sagði hann orðinn hvítur í framan en .þá bamm opnaðist hurðin póstvagninn er bilaður sagði konan hans... svo þögn... hann sat þarna með snyrtidót spúsu sinnar horfði á hana klæddur í skræpótt illa saumuð föt hvítur í framan nema nefið var eftir... það sem verra var að hann var að segja með sjálfum sér I need brown(þar sem þetta var jú í bretlandi) hann vildi hafa brúnt um augun svo framúrstefnulegur kallinn... en... konan hafði þetta og sagði hvað ertu að gera með tárin í augunum börnin hans stóðu fyrir aftan hana og horfðu á pabba með tárin í augunum... pabbi ertu kona? eins og ég sagði sagði konan hvað sagðisru þegar hún kom inn og sá mann sinn... en þar sem hann var fljótur að hugsa spann hann á staðnum að hann hafi verið að undirbúa sig fyrir heimkomu þeirra og hann væri clown hann hefði í raun sagt i am a clown sem var orð sem hann bjó til þarna á staðnum... svo byrjaði hann að mála sig meira og ýktar...

 

þar hafiði það... trúðar.. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 08:47:54 / creeper

Femínistar

það er til eitthvað sem heita feministar...

þetta er undarlegur þjóðflokkur ef svo má segja því að allt er klám og bull...

eins og smáralindarbæklingurinn á að vera klám... samt sést varla skinn, þetta er sagt vera myndmál en kommon hún er að beygja sig ljósmyndarinn segir horfðu upp og hún lítur upp hress mynd sem er notuð. neineinei þetta er klám stelpan er dæmd drós hún verður núna ofsótt af gröðum fermingarbræðrum þökk sé feministum sem hafa ekki útlit í að vera utan á smáralindarbæklingnum.

annað er svokallað jafnréttisfrumlag sem að verið er að fá í gegn launaleynd verði létt svo konurnar þurfi ekki að leggja mikið á sig til að forvitnast um það að einhver sé betur launaður en þær, því það er brot að vera hærra launaður en kona orðið í dag. þetta er þröngsýni okkar að kenna við heimsku karlmenn eigum ekkert með að vera hærra launaðir en þær hafa kúgað þær í þúsundir ára og eigum bara skilið að vera jafnir í launum til að lækka rostann helvítis karlpungar...

þetta finnst mér voða spes að mörgu leiti karlar eru jú í æðri stöðum vissulega er erfitt fyrir konur að komast þangað en er ekki málið að vinna sig þangað Rannveig Rist er ansi merkileg kona og ekki man ég til þess að hún hafi látið reka einhvern til að komast þangað.

ég hef líka hugsað þetta að það eru fullt af metnaðargjörnum köllum ætla að verða ríkir eða eitthvað annað en konum langar yfirleitt í góða vinnu falleg börn og vera heima og elska manninn sinn karlmenn hugsa oftar njehh... ég er til í frábæra vinnu ég skal vinna sem lengst svo krakkaormarnir verði sofnaðir...

nei þetta er kannski fullgróft en samt ætti að vera hægt að lesa sannleikskorn úr þessu það er mun minna af frambærilegum konum margar eru frábærar í vinnu vinna eins og skepnur eru klárar og æðislegar en svo eru hinar... allar konur eru æði(flestar ok...) og þær eiga allt gott skilið en þessi femistar eru svo djöfull leiðinlegar oft á tíðum væla í stað að gera, vilja láta rétta sér í stað þess að vinna upp. hvað hét hún aftur sem stóð ekki upp í strætó Rosa eitthvað hún var kjarnakona búin að vinna allan daginn og var þreytt, stóð ekkert upp fyrir þessum karli sem var bara með miðaldarkreppu. nei hún stóð sína plikt(sat hana raunar) en hún er hetja í baráttu svartra í dag bara fyrir þetta litla atriði. hvað ef hún hefði verið feminsti? hún hefði líklega bara staðið upp grátið smá náð í vinkonu sína og talað um það blótað körlum í smá stund og liðið vel. annað dæmi er um manninn sem að man of honor er um(cuba godding Jr...) hann gaft aldrei upp aldrei einfættur svartur laminn hann gerði þetta helmingi erfiðar en hinir og var bara hreint og beint bestur... hann hefði sem feminsti á íslandi líklega hringt í vinina þegar honum var hent út í fyrsta sinn en neibb hann kom aftur þetta sýnir sig allar þessar hetjur hafa barist í mótlætum sem hefur á daga þeirra drifið.

þess vegna segi ég haldið áfram að vera  feministar ef þið þurfið að titla ykkur eitthvað en í guðs bænum gerið það sjálf vinna sig upp ekki betla.. ég er hlynntur bættri stöðu kvenna en muna verður að það er grundvallarmunur á kynjunum með svo margt 50%-50% kerfi virkar bara ekki alltaf best...

hugsum okkur fyrirtæki þar vinna 20 karlar allir hafa unnið þar frá stofnun sem er 10 ár. svo kemur upp löggjöf allir þurfa að birta laun sín og já það þarf 50% starfsmanna að vera konur. énginn af þessum mönnum er neitt annað en mjög góðir starfsmenn þeir mæta allraf í vinnu og vinna vel í raun er enginn bestur allir 100% toppmenn og miklir vinir á svo litlum vinnustað. svo kemur launabirtingin sem jafnréttissinnar vilja ólmar fá. við það raskast jafnvægið á vinnustaðnum og þeir draga sig í hópa því sumir voru dugæegri að fara og krefjast launahækkunar og eru því töluvert hærri en aðrir, við það þá draga þeir hærra launaðir sig í hóp og lægra í annan hóp, þar er góði mórallinn ekki eins góður baktal fer að myndast o.s.frv. þeir sem eru lægra launaðir verða slakari í vinnu og þeir hærra líka þessir lægra launaðir vegna þess að þeir sjá ekki tilgang í að vera eins duglegir og fyrir lagafrumvarp því þeir eru jú bara á einhverjum skítalaunum og þessir hærra launaðir vinna ekki eins vel því að þeir þurfa þess hvort eð er ekkert er á svo fínum launum maður... miðað við hina. Næst kemur að næstu stóru breytingu, en það er að segja upp helmingi starfsmanna 10 manns reknir, sennilega þeir hærra launuðu þeir sem að einmitt höfðu frumkvæði þeir sem lögðu á sig að krefjast hærri launa og í stað þeirra koma inn nýir starfsmenn konur sem eru á sömu launum og þeir sem fyrir eru án þess að hafa unnið fyrir því og og eru alveg nýjar í starfinu, við það lækkar framleiðslumagn í einhvern tíma og það er mjög ólíklegt að allar konurnar verði jafngóðar eins og samheldnin og vináttan skapaði áður en frumvarpið var samþykkt

 

jæja þetta var það... smá pælingar:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 20:51:07 / creeper

hugsa dýr?

ég er að gera ritgerð lokaritgerð í kenningum í heimspeki það þykir mér gaman jeij...

ég er þreyttur er að fara í ræktina í fyrramálið jahá sjáum hvrernig það fer langaði bara svona létt að setja inn smá færslu...

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 09:07:42 / creeper

það er dagur nefndur í höfuðið á þér....

nú eru miklir gleðidagar liðnir... öskudagur, bolludagur og sprengidagur...

góðir dagar góðir dagar hér á bifröst er þetta þannig að krakkarnir ganga í hús og syngja fyrir nammi. þar sem að búðir eru þrjár á svæðinu. EN ég var ekki heima í allan gærdag og átti ekkert nammi þannig að ég gat ekki látið börnin hafa sælgæti til að láta foreldrana arga á þá.

samt sem áður kom ég heim´rúmlega fimm í gær til að fara í skúringa fötin. þegar ég var að ganga inn heyrði ég hvísl... það var einhver að fylgjast með mér... og þegar ég var ný kominn inn þá vara dinglunni bjallað... börn að vilja syngja og það eina sem ég átti var gömul pizza... ég beið í 10 mín og slapp við að láta börnin arga á mig.. hjúkk...

svo er helgin mikla að ganga í garð drengir úr 85 árgangi GS munu hittast drekka hafa hátt og gaman.. éta vel og lengi og mikið... þetta hlakka ég til að sjá.. og taka þátt í

ég er líka enþá með eyrnabólgu

heyri samt hálfa heyrn eða fast að því...

það er brennívín í flöskunni, það glóir en í öskunni....

maður sem að ekkert kann veit ekkert er ekkert... en einhver sem er ekkert veit fátt og kann ekkert varð forseti í bandaríkjunum... merkilegt

 

jæja ekki meira í bili

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 08:18:39 / creeper

veikur...veikur...

jæja í dag er fimmtudagurinn 15 febrúar fínasti dagur... málið er að ég og karen fórum á akureyri um síðustu helgi eftir að hafa verið hálf lasin svona... ég hélt ég væri að skána og var bara í flippinu með liðinu.. það hinsvegar var ekki gott því aumingja karen lá alla helgina en fékk að hitta gamla settið sitt.... ég var orðinn hress á mánudaginn...

 

en á þriðjudaginn síðastliðinn þá missti ég heyrn á hægra eyranu með tilheyrandi verkjum.... var heima þá og á miðvikudaginn var ég sofandi núna er ég kominn með verki í hitt eyrað og heyri bara ekki neitt.... mjög áhugavert í tíma... sit og heyri svona uml bara....

 

jæja langaði bara að gráta smá


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 09:08:01 / creeper

trúmál...

ég verð að skoða aðeins trúmál. sko ég er enginn hallilúja maður sem ætla að prédika eitthvað...

ég verð samt að koma með svona mitt view á trúmál.

Ég var að lesa blogg um þarna vísindakirkjuna. Hún er spes... Ágæt fyrir fólk sem hefur ekki hugmyndaflug eða þorir ekki hreinlega að trúa. vissulega getur verið erfitt að trúa... þú gætir verið talinn lúði asnalegt að trúa á guð og af hverju kemur þá eitthvað slæmt fyrir? Allt það slæma sem að komið hefur fyrir var eftir að "hann" gaf okkur vald yfir okkur sjálfum. Málið er bara ekki svo einfalt að einhver kall(eða geimvera) horfi niður og passi okkur það er bara barnalegt að hugsa þannig. Sjálfur trúi ég á hina æðri veru sem að ég tel Guð vera. Finnst það mjög gott og það hjálpar mér að skilja margt. en það að einhver geimvera eða einhver gaur hafi komið plantað okkur hérna er eins og áður sagði ansi mikil einföldun.

Kristnin og trúarbrögð finnst mér líka vera voða léleg auglýsingaherferð sem reyndar virkar vel... þetta er ekki ólíkt eins og pepsi og kók... nánast sama draslið en einhver blæbrigða munur á túlkun. Kjarninn er sá sami... Guð er það sem þú trúir að hann sé. Hann getur verið kall svín kona hundur eða belja... hann þarf heldur ekki að vera neitt sem að er kannski best. Fyrir mér er Guð eitthvað sem að horft getur verið til þegar í harðbakkann slær allt fer til andskotans. Guð er algóður en hann er líka alslæmur. Guð má segja vera almáttugan hann getur samt ekki allt. ég er að reyna að benda á þennan kost ef þú hugsar málið alveg til enda sérðu að þetta er ekki einhver kall eða andi þetta er einhver verund sem að hugsanlega er til og ekki til. eitthvað eins og hugur manns.

Ef ekki er hægt að ýminda sér eitthvað sem að ekki er til eins og Guð er þá ekki hægt að hugsa sér að hugur manns og sál, tilfinningar séu ekki til. Ég sæki flest af þessu í grunninn hjá Descartes. hann hafði áhrif á mig fékk mig til að hugsa... áður en ég las hann var ég ekki viss... svo hef ég lesið marga aðra síðan þá flestir minnast á Guð í einhverjum skilningi en það að Guð sé til án þess að vera það finnst mér vera skýrast hugsanlega.. þó það sé fullóskýrt...


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 10:47:49 / creeper

samráð flutningsfyrirtækja

Góðan dag, þessi pistill er ekki kýminn hann er leiðinlegur áhugaverður en leiðinlegur.

Ég hef fylgst svolítið með umfjöllum um hið svokallaða samráðsmál olíufyrirtækjanna leiðindamál í alla staða en samt hefur verðið alltaf hækkað síðan og alltaf er það, það sama. Þetta var nú kannski ekki mergur málsins þegar talað var um samráð, heldur þá staðreynd að olíufélögin ráku saman bensínstöðvar öll saman eða tvö og tvö alltaf var það samt eitt sem að var rekstraraðili en seldi bara vörur frá hinum fyrirtækjunum líka.

Þar sem það var bara eitt fyrirtæki þá var það vegna þess að þeir höfðu haft samráð um hvaða bæjarfélag hver fengi að reka bensínstöð á (reyndar átti þetta líka við um bensínstöðvar sem voru í "samrekstri".

það var nú ekki mín ástkæru olíufélög sem ég ætlaði að tala heldur voru að flutningsfyritækin en þau eru í eigu "stærri" manna og þess vegna eru þau verri til aðdróttana. Þar sem ég er ekki enþá frammá maður í þessi þjóðfélagi sem við búum í þá gef ég mér leyfi til að ræða hvað sem er. Allavega þá eru flutningsfyrirtækin að gera það nákvæmlega sama. Þau fela það kannski betur eftir að upp komst um olíufélögin en það þarf ekki bráðskarpann mann til að sjá að það er yfirleitt eitt fyrirtæki í hverjum bæ úti á landi yfirleitt ekki í samkeppni og oftar en ekki eru þessi fyrirtæki bæði að reka landflutninga og flytjanda. Gárungar segja að landflutningar hafi fengið dalvík í stað fyrir að láta undan í samkeppni við flytjanda á sigló. Þetta er til háborinnar skammar það eru tvö megin flutningsfyritæki og svo mörg minni. Þessi minni eru oftast ef ekki alltaf í samstarfi við hin stóru fyrirtæki. Þannig að þetta er hálfgerð einokun. Það sem er kannski ekki eins gróft er að færri nota flutningsaðila heldur en bensín og það er ákveðin samkeppni í verði enþá.

hinsvegar á viðskiptavinur að geta valið hvar hann verslar sjá samkeppni því ég veit vel af eigin reynslu að veltan í gegnum flutninga er mikil. tvö fyrirtæki í stað eins og siglufirði gengur.

Að sjálfsögðu snýst þetta um að græða peninga og er þetta mun ódýrara heldur en að þurfa að eyða púðri í samkeppni úti á landi en er ekki landsbyggðin enþá til? það eru viðskiptavinir þar sjávarútvegur og annar útvegur sem þarfnast flutninga. Þetta mál þarf að skoða betur ekki endilega af mér heldur af einhverjum sem vit hefur á.

Snævar Jón Andrjesson


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6